Skilmálar
Almennir skilmálar vegna kaupa lyftumiða og annars á internetinu
Skilmálar þessir eiga við samskipti milli Skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins (söluaðili) og þeirra aðila sem kaupa þjónustu/miða á heimasíðu söluaðila eða samstarfsaðila þeirra á vereldarvefnum. Þessir skilmálar eiga við um lyftumiða, aðstöðu, gistingu, afþreyjungu og kaup á öðrum vörum eða þjónustu. Eða samsetnungu þessarra þátta.
Söluaðili:
Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins
Reykjavíkurborg
Höfðatorg, Borgartún 12-14,
105 Reykjavík, Iceland
Sími: 530-3000
Netfang: midar@skidasvaedi.is
1. Ábyrgð kaupanda
Kaupandi skal ávallt lesa og kynna vel upplýsingar um það sem kaupa skal áður en bókun er kláruð og send. Kaupandi er ábyrgur fyrir því að tryggja að kaup hans séu í takt við eigin óskir.Það er einnig á ábyrgð kaupa að fylgjast með a upplýsingar sem hann fær sendar með staðfestingu (aðeins í tölvupósti) séu í samræmi við það sem viðkomandi skráði inn við pöntunina.
Einnig er hægt að búa til reikning og skrá sig inn með aðstoð samfélagsmiðla (Facebook and Google+). Ef samfélagsmiðlar eru nýttir til að búa til reikning, unum upplýsingar um netfang verða teknar frá skráðum netföngum á viðkomandi samfélagsmiðli.
Ávallt er hægt að breyta eigin upplýsingum á reikningum þínum með því að skrá sig inn á "Minn reikingur"
2. Lyftumiðar
Til að geta keypt lyftumiða þarf ávallt að nota vasakort. Upplýsingum um keyptan lyftumiða er hlaðið niður á vasakortið í fyrsta sinn sem notandinn fer í gegn um hlið við lyftu skíðasvæðisins. Vasakortið er skráð á einstakling og á botni þess er vasakortsnúmer (t.d. 01-1614 7200 2500 3445 8000-01) sem nota verður við kaup á miðum á vefnum til að hægt sé að endurhlaða lyftumiðunum inn á rétt vasakort.
3. Framkvæmd pöntunarinnar
Eftir að hafa réttilega framkvæmt greiðslu á netinu munt þú fá senda kvittun með tölvupósti. Kvittunin innheldur allar upplýsingar um kaup þín á netinu og getur verið gott að hafa hana með sér á skíðasvæðið.
Pöntuninni er ekki lokið og er því ógild í eftirfarandi tilfellum: Notandinn hefur ekki fengið sendan tölvupóst með staðfestingu bókunar eða bókunarnúmeri,
Greiðsla hefur mistekist eða hætt hefur verið við hana. Greiðslan mistekst eða er ekki rétt þannig að upphæðin dregst ekki af reikningi notanda. Ef þetta hendir munu bókanirnar renna út og verða ógildar.
Ef þu ert í vafa um hvort bókunin þín hefur tekist hafðu þá samband við okkur:
Sími: 5303000
Netfang: midar@skidasvaedi.is
4. Greiðsla
Við notum greiðslugátt hjá Netaxept og Valitor og hægt er að greiða með Visa og Mastercard kortum. Þriðji aðili hefur ekki aðgang að persónuupplýsingum þínum né greiðslukortaupplýsingum. Netaxept og Valitor nota öryggar samskitaleiðir (Secure Socket Layer (SSL)) við flutning persónulegara gagna. SSL útbýr öruggt (dulkóðað) samband milli tölvunnar þinnar og Netaxept. Á þennan hátt eru upplýsingarnar sendar öruggar á milli án utanaðkomandi aðgangs.
5. Réttur til úttektar
Þegar miðar eru keyptir á netinu er ekki réttur til að hætta við eða endurgreiða miðanna. Þetta á einnig við um pakka og/eða tilboð sem í boði eru ákveðna daga. Né þegar keyptur er lyftumiði fyrir ákveðna dagsetingu vegna viðburðar.
Viðskiptavinur getur í ljósi veikinda eða meiðsla óskað eftir endurgreiðslu kostnaðar sem hlýst þann tíma sem viðskiptavinurinn getur ekki nýtt kortið. Hægt er að óska eftir því að læknisvottorði sé skilað ef farið er fram á endurgreiðslu sökum veikinda/meiðsla. Lyftumiðum skal þá skila inn svo fljótt sem auðið er.
6. Breytingar á sköttum/gjöldum
Ef breytingar eru gerðar á sköttum eða öðrum opinberum gjöldum sem hafa áhrif á kostnað skíðasvæðisins vegna lyftumiðanna/þjónustunnar eftir að greiðsla hefur farið fram, mun kostnaðnum vera bætt við pöntunina eftirá. Tilkynna skal um verðbreytinguna samstundis.